Söguáfangi með námsferð til Póllands þar sem gist verður í 4 nætur Kraká. Farin verður dagsferð í Auschwitz og Schindlerssafnið verður skoðað ásamt öðrum sögulegum stöðum í Kraká. Helförin verður skoðuð frá ýmsum hliðum þar sem saga gyðingaofsókna í Evrópu verður sett í samhengi við uppgang nasismans í Þýskalandi. Farið verður yfir þróun borgaralegra réttinda gyðinga á millistríðsárunum og hvernig þau enduðu með þjóðarmorði. Sérstök áhersla verður á sögu gyðinga í Þýskalandi og Póllandi og hugmyndafræði nasismans sem verður rannsökuð ítarlega. Einnig verður farið yfir ofsóknir annara jaðarhópa í Þriðja ríkinu. Að endingu verður helförin sett í samhengi við þjóðernishreinsanir og flóttamannavandamál sem hafa átt sér stað síðan. Nemendur lesa valdar greinar frá kennara og horfa á viðtöl við eftirlifendur helfararinnar ásamt heimildamyndum.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
Undanfari: SAGA2BA05 eða SAGA2BB05 eða SAGA2BC05.
Námsmat: Sjá kennsluáætlun.