ENSB1FB00 - Enska 2 á framhaldsskólabraut

Í þessum áfanga eru undirstöðuatriði í ensku rifjuð upp til að nemandi geti tekist á við nám í faginu á framhaldsskólastigi. Unnið með markvissar málfræði- og orðaforðaæfingar. Áhersla er lögð á vandlegan lestur texta, bæði bókmenntatexta og texta almenns eðlis. Skilningur á töluðu máli er þjálfaður með hlustun á rauntexta. Nemendur eru þjálfaðir í að tjá sig með viðeigandi orðalagi um almenn efni á ensku. Ritun er þjálfuð með fjölbreyttum æfingum þar sem áhersla er lögð á að skrifa texta á skipulagðan hátt og skipta í efnisgreinar.

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • grunnreglum í enskri málfræði
  • grunnorðaforða (upp í 2000 orð miðað við Word Frequency Lists)
  • almennum rauntextum og einföldum bókmenntatextum
  • almennum rauntexta í útvarpi og sjónvarpi

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • beita grunnreglum enskrar málfræði í tali og ritun.
  • skrifa samfelldan texta og skipta eigin texta í viðeigandi málsgreinar
  • tjá sig um almenn málefni með viðeigandi orðalagi, munnlega og skriflega
  • lesa almenna rauntexta og einfalda bókmenntatexta
  • byggja upp og bæta við sinn orðaforða með mismunandi aðferðum

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • vinna á fjölbreyttan hátt með almenna rauntexta og einfalda bókmenntatexta
  • nýta grunnorðaforða í tal- og ritmáli
  • taka þátt í almennri umræðu á ensku
  • geta sjálfstætt aukið orðaforða sinn