ENSA1FB00 - Enska 1 á framhaldsskólabraut

Megintilgangur áfangans er að byggja upp sjálfstraust nemenda gagnvart ensku, bæði í töluðu máli og rituðu. Lesefni áfangans er af ýmsum toga, bæði bókmenntatextar og tímaritsgreinar. Ritunarverkefni eru bæði frjáls og ritun sem byggir á lesefni áfangans. Áhersla er lögð á notkun orðabóka á netinu.

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • grundvallaratriðum enskrar málfræði
  • grunnorðaforða til skilnings á textum og töluðu máli um kunnugleg efni og einnig til ritunar um sömu efni
  • tilteknum hagnýtum orðarforða daglegs lífs
  • heildarinntaki í munnlegum frásögnum og samtölum um efni almenns eðlis

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • skilja talað mál um kunnuglegt efni
  • skilja almenna texta með orðaforða úr daglegu lífi
  • mynda setningar um kunnugleg efni
  • nota upplýsingatækni til að afla sér gagna og efnis í málanáminu
  • lesa á ensku sér til gagns og ánægju
  • taka þátt í einföldum samtölum á ensku
  • semja stuttar efnisgreinar

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • skilja almennt einfalt daglegt mál, þ.m.t. úr kvikmyndum og öðru afþreyingarefni ...sem er metið með... kynningu á verkefninu eða öðru munnlegu verkefni
  • skilja almenna einfalda texta um kunnuglegt efni
  • skilja stuttar blaða- og tímaritsgreinar um almenn efni og námsefni
  • lesa sér til ánægju, t.d. bókmenntir eða um hugðarefni sín, og geta tjáð sig um efnið
  • miðla efni sem hann hefur aflað sér þekkingar á
  • skrifa stutta, samfellda texta um persónuleg efni eða áhugamál og efni sem tengist námsefni áfangans