BAKA1FB03 - Bakstur á framhaldsskólabraut

Í áfanganum er fjallað um undirstöðuatriði brauð- og kökugerðar, baksturs og skreytinga. Áhersla er lögð á grundvallaratriði í bakstri. Nemendur læra að vinna eftir uppskriftum. Áhersla er lögð á persónulegt hreinlæti og nákvæmni í vinnubrögðum.

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • að vinna eftir uppskriftum
  • helstu áhöldum, vélum og tækjum sem notuð eru við bakstur
  • leita að uppskriftum á netinu
  • þekkja eftirlitsreglur um hreinlæti

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • vinna með gerdeig og baka úr því algengar brauðtegundir
  • vinna með rúllað deig
  • vinna með bæði þeyttar og hrærðar kökur
  • vinna með rafrænar sem og aðrar uppskriftir

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • baka brauð og kökur
  • vinna sjálfstætt að almennum og sérhæfðum verkefnum tengdum bakstri
  • ylla út gátlista eftir þrif, sem byggður er á viðurkenndu m eftirlitsreglum um hreinlæti