Fréttir

Töflubreytingar, leiðbeiningar og stokkatafla

Hér er að finna leiðbeiningar og stokkatöflu

Stöðupróf í norsku og sænsku

Menntaskólinn við Hamrahlíð býður upp á stöðupróf í norsku og sænsku mánudaginn 28. ágúst kl. 16.30. Stöðuprófin eru fyrir einstaklinga sem hafa lokið yfirferð á námsefni á framhaldsskólastigi í norsku í Noregi eða sænsku í Svíþjóð. Nánari upplýsingar eru á heimasíðu MH þar sem skráning fer fram: https://www.mh.is/is/namid/prof/stoduprof-i-saensku-og-norsku

Skrifstofan verður lokuð

Skrifstofan verður lokuð miðvikudag 16. ágúst og fimmtudag 17. ágúst frá kl. 9:00 til kl. 13:00 vegna starfsmannafunda

Upphaf haustannar 2023

Undirbúningur fyrir skólastarfið á haustönn 2023 er í fullum gangi og við hlökkum til að sjá ykkur öll. Verið er að vinna stundatöflur nemenda og bókalisti er aðgengilegur á heimasíðu skólans. Smellið á fyrirsögn fyrir helstu dagsetningar framundan sem gott er að hafa í huga fyrir nemendur og forráðamenn.

Skólagjöld

Öll aðsóknarmet slegin og færri komust að en vildu

Innritun nýnema og eldri nemenda í bók- og verknám fyrir haustið 2023 er lokið. Að þessu sinni sóttu 661 nemandi, fæddir 2007, um MK í fyrsta eða öðru vali. Teknir voru inn 270 nýnemar, 180 innrituðust á stúdentsbrautir, 51 nemandi í grunnnám matvæla- og ferðagreina og 39 nemendur á framhaldsskólabrú. Nemendur voru teknir inn eftir einkunnum. Því miður verður enginn biðlisti settur upp hjá okkur enda skólinn alveg fullsetinn.  Í hótel- og matvælaskólann voru 15 nemendur innritaðir í bakstur, 26 í framreiðslu, 9 í kjötiðn, 53 í matreiðslu, 50 í meistaranám iðngreina og 30 í matsveina- og matartæknanám. Innritun stendur enn yfir í Leiðsöguskólanum en þar eru nokkur pláss laus. Áhugasamir geta sent tölvupóst á lsk@mk.is

Sumarlokun í MK

Skrifstofa skólans verður lokuð frá kl. 11:45 föstudaginn 23. júní. Við opnum skrifstofuna aftur miðvikudaginn 9. ágúst kl. 10 en viljum benda á upplýsingar um námið á heimasíðu skólans. 

Menntaskólinn í Kópavogi er fullsetinn á haustönn 2023

Aðsóknarmet var slegið í umsóknum í MK og aldrei hafa fleiri nýir nemendur verið teknir inn í skólann.

Skólinn lokaður þriðjudaginn 30. maí

Skólinn verður lokaður þriðjudaginn 30. maí vegna starfsmannaferðar. Opnum aftur miðvikudaginn 31. maí kl. 10.

Vel mætt á auka kynningu á MK