Fréttir

Brautskráning frá MK

Útskrift Menntaskólans í Kópavogi fór fram í gær, 20. desember, við hátíðlega athöfn í Digraneskirkju. Brautskráðir voru .....

Opnunartími skrifstofu um jól og áramót

Skrifstofu skólans verður lokað á hádegi föstudaginn 22. desember. Milli hátíða verður opnunartíminn sem hér segir:

Útskrift í Digraneskirkju

Ljóð frá nemanda

Útskrift miðvikudaginn 20. des kl. 14:00

Stúdentsefni og verknámsnemar í matreiðslu, framreiðslu, matartæknanámi og meistaranemar útskrifast miðvikudaginn 20. des kl 14:00 í Digraneskirkju. Öll útskriftarefni eiga að hafa fengið nánari leiðbeiningar um fyrirkomulag útskriftar sendar í tölvupósti.

Prófsýning í dag 18. des

Kópamessa fyrir útskriftarnemendur

Á morgun, föstudaginn 1. des, verður Kópamessa haldin frá kl. 8:20-10:00 en þá snæða útskriftarefni og starfsfólk skólans saman morgunmat. Kennsla fellur því niður í fyrstu tveimur kennslustundunum föstudaginn 1. desember nema hjá þeim nemendum sem hafa fengið boð um annað.

Skrifstofan verður lokuð

Skrifstofan verður lokuð frá kl. 15:00 í dag, miðvikudag. Opnun aftur kl. 8:00 á fimmtudag

Dagur íslenskrar tungu

Kynning frá Rauða krossinum fyrir nemendur í félagsfræði

Nemendur í félagsfræði hjá Hjördísi og Maríu Ben fengu heimsókn frá Rauða krossinum föstudaginn 10. nóvember. Þeir fengu kynningu á helstu verkefnum Rauða krossins innanlands og erlendis sérstaklega varðandi flóttamenn og neyðaraðstoð á hamfarasvæðum. Nadía Ýr frá Rauða krossinum fræddi nemendur meðal annars um hlutverk fjöldahjálparstöðva eins og Kórinn í Kópavogi og hvað væri gert til að hjálpa fólki á flótta vegna náttúruhamfara eða stríðsátaka. Ekki grunaði okkur þá hvað væri í vændum vegna jarðhræringa í Grindavík síðar um kvöldið. Þessir nemendur eru án efa meðvitaðri núna um mikilvægi þess að hjálpa fólki í neyð hvar sem er í heiminum.