BAKA1FB03 - Bakstur á framhaldsskólabraut
Í áfanganum er fjallað um undirstöðuatriði brauð- og kökugerðar, baksturs og skreytinga. Áhersla er lögð á grundvallaratriði í bakstri. Nemendur læra að vinna eftir uppskriftum. Áhersla er lögð á persónulegt hreinlæti og nákvæmni í vinnubrögðum.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- að vinna eftir uppskriftum
- helstu áhöldum, vélum og tækjum sem notuð eru við bakstur
- leita að uppskriftum á netinu
- þekkja eftirlitsreglur um hreinlæti
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- vinna með gerdeig og baka úr því algengar brauðtegundir
- vinna með rúllað deig
- vinna með bæði þeyttar og hrærðar kökur
- vinna með rafrænar sem og aðrar uppskriftir
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- baka brauð og kökur
- vinna sjálfstætt að almennum og sérhæfðum verkefnum tengdum bakstri
- ylla út gátlista eftir þrif, sem byggður er á viðurkenndu m eftirlitsreglum um hreinlæti