Prentvæn útgáfa
Á félags- og hugvísindabraut er áhersla lögð á að byggja upp sterkan þekkingargrunn á sviði félags- og hugvísinda þar sem nemendur öðlast innsýn í fræðilegar starfsaðferðir.
Með bundnu vali geta nemendur aðlagað námið að þörfum sínum og áhugasviðum. Brautinni lýkur með stúdentsprófi og þar með býr nemandinn yfir þekkingu, leikni og hæfni til að takast á við nám á háskólastigi. Brautin er góður undirbúningur fyrir frekara nám í mannvísindum, félags- og hugvísindum s.s. félagsfræði, sálfræði, sögu, stjórnmálafræði, fjölmiðlafræði, mannfræði, lögfræði, félagsráðgjöf og uppeldisfræði.
Inntökuskilyrði
sjá hér
Námstími
Námstími til stúdentsprófs er þrjú ár og þarf nemandi að ljúka 33-34 einingum á önn til að ljúka á þeim tíma.
Brautin skiptist í kjarna 142 einingar, bundið val 40 einingar og frjálst val 20 einingar, samtals 202 einingar
142 einingar - Kjarni
Heiti fags, (einingar) skammstöfun fags og skammstöfun áfanga með tengli í áfangalýsingu
- Danska (5) DANS 2BA05
- Enska (20) ENSK 2BA05, 2BB05, 3CA05, 3CB05
- Íslenska (20) ÍSLE 2BA05, 2BB05, 3CA05, 3CB05
- Stærðfræði (10) STÆR 2BA05, 2BB05 (tölffæði, talninga- og líkindafræði)
- Þriðja mál (15)
- Fjármálalæsi (5) FJÁR 2BA05 áfangi tekinn á 5.- 6. önn
- Íþróttir (4) ÍÞRÓ 1AA01 áfangi tekinn fjórum sinnum
- Kynjafræði (5) KYNJ 2BA05 áfangi tekinn á 3.- 4. önn
- Virðing, efling, rökhugsun og atorka (5) VERA 1AA01, 1AB01, 1AC01, 1AD01, 2BA01 (2BA tekinn á lokaönn)
- Lokaverkefni (3) LOVE 3CA03 áfangi tekinn á lokaönn
- Lýðheilsa og vellíðan (5) LÝÐH 2BA05 áfangi tekinn á 1.-2. önn
- Umhverfisfræði (5) UMHV 2BA05 áfangi tekinn á 1.-2. önn
- Raungreinar (5) EFNA2BA05/EÐLI2BA05/LÍFF2BA05/JARÐ2BA05 nemandi velur einn áfanga
- Félagsfræði (10) FÉLA 2BA05, 2BB05
- Fjölmiðlafræði (5) FJÖL 2BA05
- Saga (10) SAGA 2BA05/2BB05/2BC05 nemandi velur tvo áfanga
- Sálfræði (10) SÁLF 2BA05, 2BB05
40 einingar - bundið val
Nemandi velur 40 einingar eða átta áfanga*
- Danska DANS 2BB05, 3CAO5
- Enska ENSK 3CC05
- Íslenska ÍSLE 3CC05
- Stærðfræði STÆR 3CA05 (ályktunartölfræði og líkindareikningur) 3CD05
- Þriðja mál
*Nemendur velja áfanga í bundið val, miðað við aðgangsviðmið háskóla
20 einingar - Frjálst val
Frjálst val 20 einingar þar sem nemendi getur haldið áfram að dýpka þekkingu sína og velja fleiri áfanga af sérsviði félags- og hugvísindabrautar eða valið aðra áfanga sem skólinn býður upp á.
Hafa þarf í huga við allt val að einingar á fyrsta þrepi geta verið 66 að hámarki, annars þreps einingar geta verið 100 að hámarki og það þurfa að vera að lágmarki 34 einingar á þriðja þrepi.
Lágmarkseiningafjöldi til stúdentsprófs er 202 einingar, en nemandi má útskrifast með fleiri einingar.
Danska, enska, íslenska, stærðfræði á fyrsta þrepi teljast ekki með til stúdentsprófs þ.e. í 202 eininga pakkanum.
Lokamarkmið félags- og hugvísindabrautar
Að loknu námi á félags- og hugvísindabraut skal nemandi hafa hæfni til að
- afla sér upplýsinga, meta þær, vinna úr þeim og túlka þær
- sýna frumkvæði og skapandi hugsun við lausnamiðað nám
- efla eigin sjálfsmynd og nýta styrkleika sína
- leita fullnægjandi raka fyrir skoðunum sínum og annarra
- gera sér grein fyrir samfélagslegri ábyrgð sinni
- taka þátt í lýðræðislegri samræðu og samstarfi
- nálgast viðfangsefni sín og umhverfi á víðsýnan, umburðarlyndan og ábyrgan hátt
- fjalla um og taka þátt í upplýstri umræðu um ýmis mál er tengjast samspili vísinda, tækni og samfélags
- nýta sér góða almenna þekkingu á sviði félags- og hugvísinda
- beita aðferðum þeirra greina sem hann sérhæfir sig í og velja viðeigandi rannsóknaraðferð hverju sinni
- takast á við frekara nám, einkum í mannvísindum, félags- og hugvísindum s.s. félagsfræði, sálfræði, sögu, stjórnmálafræði , fjölmiðlafræði, mannfræði, félagsráðgjöf og uppeldisfræði.