Forsíðu myndir
Menntaskólinn í Kópavogi
framreidsla 2.jpg
http://mk.is/images/stories/myndir_forsida/framreidsla 2.jpg
GA-1.jpg
GA-22.jpg
GA-fram.jpg
GA-43.jpg
kokkar5.jpg
GA-15.jpg
GA-55.jpg
GA-52.jpg
MK er meðal þeirra átta framhaldsskóla sem komust áfram í úrslit framkvæmda-keppninnar Boxins sem verður haldin í HR nú á laugardaginn, 11. nóvember. Nemendurnir sem fara í lokakeppnina fyrir hönd MK eru: Kristín Hermannsdóttir, hópstjóri, Nökkvi Már Hansson, Sandra Dögg Steinsdóttir, Sigurjón Hjalti Hlynsson og Unnar Freyr Arnþórsson. Við óskum þeim góðs gengis á laugardaginn.
Uppfært miðvikudagur, 08 nóvember 2017 13:11
Föstudaginn 3. nóvember síðastliðinn fóru nemendur í Þjóðhagfræði í heimsókn í Seðlabankann og fræddust um starfsemi hans. Hópurinn fékk góðar móttökur og var sammála um að ferðin hefði verið bæði gagnleg og skemmtileg.
Uppfært miðvikudagur, 08 nóvember 2017 11:44
Innritun í bóklegt nám (alþjóðabraut, félagsgreinabraut, raungreinabraut, viðskiptabraut og opnabraut) og matvælanám (bakstur, framreiðsla og matreiðsla) fyrir vorönn 2018 fer fram á www.menntagatt.is dagana 1. til 30. nóvember 2017.
Uppfært þriðjudagur, 07 nóvember 2017 12:28
Þrjú lið nemenda við MK kepptu í gær um að komast í lokakeppni Boxins, framkvæmdakeppni framhaldsskólanna. Nemendurnir leystu þrautir frá HR undir leiðsögn Villa, Jóns Eggerts, Ingibjargar Haralds og Guðrúnar Angantýs. Alls taka 20 skólar þátt í undankeppni Boxins og 8 komast áfram. MK hefur hingað til staðið sig vel í Boxinu og átti til að mynda keppendur í úrslitunum tvö s.l. ár.
Uppfært miðvikudagur, 25 október 2017 13:35
MK hefur um árabil verið í fararbroddi íslenskra framhaldsskóla í notkun Geogebru í stærðfræðikennslu. Nú er hugur í stærðfræðideildinni eftir 8. ráðstefnu Eystrasaltsríkjanna og Norðurlandanna um Geogebru í kennslu, sem haldin var á Íslandi í þetta sinn. Við látum hvergi deigan síga og stefnum á Geogebrudag í vor til að kynna betur verkefnin, einföld og flókin, sem nemendur leysa með hugbúnaðinum.
Uppfært fimmtudagur, 19 október 2017 12:59
Þessa dagana eru Magda Maver og Marija Botica í heimsókna hjá okkur í MK vegna Erasmus verkefnis sem heitir From Facebook to face to face. Cross cultural relations through social media and beyond. Þær koma frá króatíska skólanum Graditeljsko- geodetska tehnicka skola í Split. Í næsta mánuði fara Aleksandra og Sigurlaug með hóp nemenda til Split.
Á myndinni eru Magda og Marija ásamt Aleksöndru og Sigurlaugu.
Uppfært miðvikudagur, 18 október 2017 18:55
mán feb 18 Ofnbakaður fiskur með hrísgrjónum |
þri feb 19 Hakk og spaghettý |
mið feb 20 Lambakjöt í karrý með hrísgrjónum |
fim feb 21 Kjúklingaleggir með kryddjurta rjómasósu og kartöflubátum |
fös feb 22 Bjúgu og uppstúf |