Stefnumótun fyrir foreldrafélag MK.
Eftirtalin atriði vill félagið gera að föstum liðum og sjá um í samstarfi við starfsmenn og nemendur skólans eftir því sem við á:
1 Stjórn foreldrafélagsins hefur tvo fasta fundi á önn - einn í upphafi annar og annan um miðja önn. Fleiri fundir eftir atvikum.
2 Félagið sendir öllum forráðamönnum barna undir 18 ára aldri tölvupóst fyrir alla atburði er varða félagslíf nemenda og eru utan hefðbundins skólatíma, s.s. böll.
3 Að haldinn sé foreldradagur í samstarfi við nemendaráð og skólann. Að hausti myndi einn dagur vera opinn foreldrum þar sem tengsl þeirra við skólann væru efld. Uppákomur o.þ.h.
Atriði sem foreldrafélagið vill beita sér fyrir á þessu skólaári:
3 Mötuneyti. Skoða hvernig mötuneytið virkar og athuga hvað hægt væri að gera til þess að það höfðaði meira til barnanna.
4 Efla tengsl umsjónakennara, barna og foreldra. Kynna betur skilgreiningu á hlutverki umsjónarkennarans. Viðtalstímar? Foreldraviðtöl?
Aðrar ályktanir á fundinum:
5 Of mörg böll á önn? Er hægt að virkja krakkana í annað í félagslífinu en böll?
6 Upp hefur komið á böllum að foreldrar hafa þurft að sækja börnin sín drukkin. Uppákomur sem þessar á að eynamerkja hverjum og einum en eiga alls ekki að hafa áhrif á allan hópinn.
Uppfært föstudagur, 18 mars 2016 17:07