Undanfari: EFN203
Svigrúmablöndun kolefnis, helstu flokkar lífrænna efna og einkennishópar: alkanar, alkenar, alkýnar, arómatar, alkóhól, eterar, lífræn halíð, aldehýð, ketónar, karboxýlsýrur, esterar, sýruhalíð, anhydríð og amín. Yfirlit yfir helstu hvörf þessara efnaflokka. IUPAC-nafnakerfið, byggingarísómerur, rúmísómerur, hendin kolefni og hendnar sameindir. Sykrur, lípíð, prótín. Verklegar tilraunir og skýrslugerð.
Markmið
Nemandi
- kynnist undirstöðuatriðum lífrænnar efnafræði
- kynnist nokkrum grunnhugtökum í lífefnafræði
- geti tengt efnafræði við daglegt líf fólks og umhverfi
- þjálfist í framkvæmd tilrauna, úrvinnslu þeirra og skýrslugerð
Uppfært föstudagur, 25 apríl 2008 14:24