Lesin er ein Íslendingasaga vandlega með nemendum og unnin margs konar verkefni í tengslum við hana, bæði munnleg og skrifleg. Skyggnst er inn í hugmyndaheim fornsagna og m.a. gerð grein fyrir hlutverkum og stöðu kynjanna í þeim og borið saman við nútímann. Nemendur kynnast norrænni goðafræði og lesa Gylfaginningu Snorra-Eddu og valda kafla úr Skáldskaparmálum. Farið er í einkenni eddukvæða og lesinn Gestaþáttur Hávamála og Völuspá. Leitast er við að gefa yfirlit yfir fornbókmenntir, helstu flokka þeirra og einkenni bæði í lausu máli og bundnu.
Markmið
Nemandi
- þekki norræna hetjuhugsjón og geti borið saman manngildi til forna og í dag
- fái góða innsýn í hugmyndaheim Íslendingasagna
- þekki einkenni eddukvæða og skiptingu þeirra í goða- og hetjukvæði
- geti skýrt efni eddukvæða í heild jafnt sem einstakar vísur
- geti aflað sér heimilda og fjallað um fornbókmenntir á skynsamlegan hátt
- þekki helstu flokka fornbókmennta og sérkenni þeirra
- þekki skiptingu bókmenntasögunnar í tímabil óskráðra og skráðra bókmennta
- þekki forna bragarhætti
Uppfært föstudagur, 28 mars 2008 10:49